Velti bíl á slitnum sumardekkjum
Mildi þykir að ekki fór verr þegar bifreið á slitnum sumardekkjum valt á Reykjanesbraut, austan við Kaffitár í Reykjanesbæ í vikunni. Ökumaður missti stjórn á bílnum í hálku og ók á ljósastaur og valt.
Ökumaðurinn og tveir farþegar voru komnir út úr bílnum þegar lögreglumenn á Suðurnesjum komu á vettvang. Fólkið var flutt með sjúkrabifreið á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til skoðunar. Ökumaðurinn kvartaði undan eymslum en farþegarnir ekki. Bíllinn var mjög illa farinn eftir óhappið.
Í vikunni valt bíll í Hvassahrauni og kenndi ökumaðurinn eymsla eftir óhappið. Öðrum bíl var ekið á grindverk og var óökufær á eftir en ekki urðu slys á fólki.
Fleiri umferðaróhöpp urðu í umdæmi Lögreglunnar á Suðurnesjum í vikunni en þau voru minniháttar og ekki urðu slys á fólki.