Velja á lista Samfylkingar 16. og 17. nóvember
Á kjördæmisþingi Samfylkingarinnar í suðurkjördæmi sem haldið var í Reykjanesbæ á sunnudaginn var ákveðið að við val á framboðslista í kjördæminu vegna alþingiskosninganna 2013 verði viðhaft flokksval þar sem flokksfélagar og skráðir stuðningsmenn einir hafa kosningarétt.
Valið verður rafrænt og fer fram dagana 16. og 17. nóvember nk. en kjörstaðir verða einnig opnir þessa daga. Niðurstaða flokksvalsins verður bindandi í 4 efstu sæti listans og paralistaaðferð verður beitt til að tryggja jafnt hlutfall kynja.
Þátttökugjald í flokksvalinu verður 20.000 kr og framboðsfrestur rennur út 24. október kl. 17.00.