Vélarvana til Keflavíkur
Netabáturinn Ósk KE 5 var dregin vélarvana til Keflavíkur í dag. Óskað var eftir aðstoð frá björgunarskipinu Hannesi Þ. Hafstein um hádegisbil en þá hafði gír bilað í Ósk KE þar sem hún var að veiðum norðarlega í Faxaflóa. Björgunarskipið var þegar mannað. Dráttartaug var komið um borð í Ósk KE og stefnan tekin á Keflavík. Þar var afla úr veiðiferðinni landað og síðan munu verkstæðismenn laga bilunina í skipinu.
Björgunarskipið Hannes Þ. Hafstein er gert út frá Sandgerði er rekið af björgunarsveitunum Sigurvon í Sandgerði og Björgunarsveitinni Suðurnes í Reykjanesbæ. Björgunarskipið hét áður Oddur V. Gíslason og var gert út frá Grindavík.
Meðfylgjandi myndir voru teknar þegar björgunarskipið kom með Ósk KE til hafnar í Keflavík nú síðdegis en hafnsögubáturinn Auðunn frá Keflavík aðstoðaði við að koma Ósk KE að bryggju. Gott var í sjóinn í dag og sóttist ferðin vel hjá björgunarskipinu.
Ljósmynd: Víkurfréttir / Hilmar Bragi Bárðarson