Vélarvana skip með 7 manns við Eldey
Björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar í Grindavík, Oddur V. Gíslason og björgunarbáturinn Árni í Tungu eru nú á leið til aðstoðar vélarvana báti sem staddur er við Eldey.
Báturinn, sem er 200 tonn og með sjö manns um borð, fékk veiðarfæri í skrúfuna og missti við það vélarafl. Talin er hætta á að hann reki upp í Eldey og er því lagt kapp á að komast á staðinn sem fyrst. Tekur það björgunarskipin um klukkustund að sigla þessa leið.
Haft hefur verið samband við bát sem er á svæðinu og mun hann bregðast við ef þurfa þykir.