Vélarvana bátur í hættu
Fyrr í kvöld var Björgunarsveitin Þorbjörn í Grindavík kölluð út vegna vélarvana báts rétt utan við höfnina. Bátinn rak hratt að landi og og mátti engu muna að hann færi í klappirnar fyrir utan innsiglinguna. En rétt áður en það gerðist hrökk hann í gang og náði skipstjórinn að sigla honum fyrir eigin vélarafli inn í höfnina.