Vélar, bátar og GMC trukkur á nýju byggðasafni á Garðskaga

Síðustu daga hefur verið unnið að því að koma vélasafni Guðna Ingimundarsonar í safnahúsið en vélarnar skipta tugum og eru allar gangfærar.
Guðni hefur unnið við að gera þær upp á síðustu árum og er um einstakt og glæsilegt safn að ræða. Þá erður GMC-trukkur Guðna á sýningunni. Nú er unnið að endurbótum á trukknum en hann var farinn að láta á sjá eftir áratuga notkun.
Fjórir bátar verða inni á safninu. Meðal annars verður þar að finna elsta árabát á Íslandi og aðra ekki minna merkilega gripi. Það var Björn G. Björnsson, sýningahönnuður, sem hannað hefur þá sýningu sem sett verður upp á safninu.
Veitingasala verður annari hæð safnahússins með frábæru útsýni yfir Faxaflóann. Stórar svalir eru á húsinu og innandyra er kaffitería með sætum fyrir 50 manns.

Ásgeir Hjálmarsson, forstöðumaður Byggðasafnsins á Garðskaga, sagði í samtali við Víkurfréttir að enn væri stefnt að því að opna safnið þann 2. júlí nk. Í dag er ýmislegt eftir en með góðu átaki ætti að vera hægt að standa við upphaflega dagsetningu.
Myndir: Hilmar Bragi Bárðarson
Önnur myndin sýnir inn í aðalsal safnsins en hin er af þeim Ásgeiri Hjálmarssyni, forstöðumanni byggðasafnsins, og Arnari Jakobssyni, starfsmanni Sveitarfélagsins Garðs að koma vélum inn á safnið í dag.