Vel unnið á Klapparstíg
Íbúar við Klapparstíg í Keflavik hringdu og vildu koma á framfæri þakklæti til starfsmanna Nesprýðis sem hafa unnið við hellulögn og annað á Klapparstíg í gatnagerðarframkvæmdum í gamla bænum. Bjarni Karlsson, verkstjóri hjá Nesprýði fær sérstakar þakkir frá íbúum fyrir vel unnin störf og liðlegheit.