Vel þeginn velgjörðarmaður
Þráinn Maríusson, formaður Unglingaráðs Reynis í knattspyrnu, fékk heldur betur ánægjulegt símtal í morgun. Var þar á línunni Henning Finnbogason, húsvörður á Ljósheimum 18 í Reykjavík, að tilkynna Þránni það að honum væri velkomið að gera sér ferð til Reykjavíkur og sækja þar dósalager sem Ljósheimar, íbúðir fyrir aldraða, áttu en þar var að finna um og yfir 1000 dósir.
Eins og kunnugt er þá höfðu óprúttnir aðilar gert það að venju sinni að ræna dósum úr dósagám Reynis en gámurinn er ein helsta tekjulind unglingastarfs Reynis í Sandgerði. Var það mikið tekjutap fyrir félagið en ágangur þjófanna var mikill í dósagáminn og eftir litlu að seilast fyrir félagsmenn undanfarnar vikur í sumar.
„Mér datt þetta í hug í morgun þegar ég las það í Morgunblaðinu að óprúttnir aðilar væru að ræna frá íþróttafélaginu,“ sagði Henning í samtali við Víkurfréttir í dag. „Þessum dósum sem eru hér að Ljósheimum er betur varið í unglingastarfið og ég vona að þau geti notað þetta og fái einhverjar krónur fyrir,“ sagði Henning, velgjörðarmaðurinn góðhjartaði.
Þráinn var hæstánægður með framtak Hennings og Ljósheima og sagði að þessi rausnarlega gjöf væri svo sannarlega kærkomin eftir vonbrigði síðustu vikna. „Henning hringdi í mig í morgun og sagði það aumt ástand að svona þjófnaður skuli eiga sér stað. Hann bauð okkur að nálgast dósirnar sem við þáðum með miklum þökkum en Henning er ötull talsmaður þess að ungt fólk stundi íþróttir og fordæmir hann þjófnaðinn sem við höfum orðið fyrir,“ sagði Þráinn þar sem hann, ásamt Henning, voru í óðaönn við að koma dósunum fyrir í bíl og þaðan beina leið í endurvinnsluna.
VF-mynd/ Margrét: Þráinn við gáminn umrædda sem þjófarnir lögðu leið sína í.