Vel steikt sælgæti á eldavélarhellu
Slökkvilið Brunavarna Suðurnesja var kallað að íbúð við Faxabraut í Keflavík í hádeginu. Nágranni hafði tilkynnt um reyk í íbúð.
Í ljós kom að kassi með sælgæti stóð á eldavélarhellu sem var í gangi svo af hlaust talsverður reykur. Slökkviliðsmenn opnuðu hurðar og glugga upp á gátt en ekki þótti ástæða til að setja reykblásara í gang.
VF-mynd: Hilmar Bragi Bárðarson