HSS
HSS

Fréttir

Vel sótt byggingarþing í Virkjun
Miðvikudagur 28. janúar 2009 kl. 10:35

Vel sótt byggingarþing í Virkjun



Málþing umhverfis- og skipulagssviðs Reykjanesbæjar um byggingarmál var vel sótt í Virkjun á Vallarheiði sl. fimmtudag. Farið var yfir lóðamál í Reykjanesbæ og nýtt byggingarupplýsingalíkan BIM kynnt.

Á fundinum kom fram að íbúafjöldi hefur aukist um ríflega 30% frá árinu 2002 og hafa á þeim tíma ný hverfi verið byggð og eru önnur í byggingu. Lóðaskil og endurúthlutanir eiga sér stað árlega en þau voru þó umfangsmeiri árið 2008 en undanfarin ár.

Búið er að gefa út um 10 byggingarleyfi í Reykjanesbæ það sem af er árinu.

Lóðarskil og endurúthlutanir:

Árið 2006 - 50 lóðum skilað og 39 endurúthlutað
Árið 2007 - 27 lóðum skilað og 29 endurúthlutað
Árið 2008 - 92 lóðum skilað  og 21 eindurúthlutað

Skipting innkominna lóða árið 2008:
72 Sérbýlishús
20 Fjöleignahús

Skipting innkominna lóða eftir hverfum árið 2008:

Ásahverfi
26 lóðir lausar af 129

Dalshverfi 1
30 lóðir lausar af 170
16 einbýlishúsalóðir lausar af 101
4 parhúsalóðir lausar af 19
4 raðhúsalóðir lausar af 11
7 fjölbýlishúsalóðir lausar af 21

Dalshverfi 2
54 Lóðir lausar af 152
24 einbýlishúsalóðir lausar af 94
10 raðhúsalóðir lausar af 20
16 fjölbýlishúsalóðir lausar af 28
4 parhúsalóðir lausar af 28



BIM á Íslandi
Óskar Valdimarsson kynnti innleiðingu BIM á íslandi en Óskar starfar hjá Framkvæmdasýslu Ríkisins og hafa þeir mikinn áhuga á að innleiða þessa vinnuaðferð í komandi verkefnum.

Í nágrannalöndum hefur í vaxandi mæli verið hugað að aðferðum til að minnka líkindi á mistökum í undirbúnings- og hönnunarferlinu. Verulegt skref í þessa átt er innleiðing á Byggingaupplýsingalíkani, BIM - Building Information Model sem nú stendur til á Íslandi.

Aðferðafræði BIM er nálgun sem sem einkennist af því að allir hlutaðeigandi aðilar verkefnis hafa samskipti með upplýsingar sem tengjast byggingarmálinu í sameiginlegu byggingaupplýsingalíkani. Möguleiki er á að hafa upplýsingar réttar á hverjum tíma og aðgengilegar í heildstæðu, rafrænu umhverfi sem gefur arkitektum, verkfræðingum og öðrum tæknimönnum, svo og verkkaupum, skýrt, sjónrænt yfirlit yfir öll verkefni þeirra og auk þess er unnt að flýta upplýstum ákvörðunum. BIM er notað á undirbúningsstigi, við hönnun, framkvæmd og mögulega við rekstur byggingarinnar. Skilgreindur er frá upphafi þáttur hvers aðila í ferlinu og eru gerðar mjög stífar kröfur varðandi uppsetningu og vinnulag. Með þessum markvissu vinnubrögðum mun hönnunarmistökum fækka svo um munar.

Framkvæmdasýslan hefur nú fengið styrk frá Íbúðarlánasjóði til að hefja innleiðingu á BIM á Íslandi.
Nýsköpunarmiðstöð Íslands var einnig veittur styrkur frá Íbúðarlánasjóði til verkefnisins Byggingaupplýsingalíkön - vefsetur fyrir menntun og símenntun hönnunarstétta.
Í desember 2008 var formlega stofnað verkefnið BIM-Ísland með þátttöku níu stofnanna sem eru fjárhagslegir bakhjarlar. Það eru: Brunamálastofnun, Fasteignir ríkissjóðs, Framkvæmdasýsla ríkisins, Íbúðalánasjóður Landsnet, Landsvirkjun, Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Orkuveita Reykjavíkur, Reykjavíkurborg, Framkvæmda- og eignasvið og Samtök iðnaðarins.

Áætlanir standa til að ráða starfsmann til að stýra verkefninu og er gert ráð fyrir að hann hefji störf þann 1. mars næstkomandi.
Starfsmaðurinn mun vinna með stjórn verkefnisins að innleiðingu BIM og hafa frumkvæði um að kynna BIM aðferðafræðina fyrir byggingariðnaðinum, standa að námskeiðum og ráðstefnum ásamt því að aðstoða verkkaupa, hönnuði og framkvæmdaaðila sem taka upp BIM aðferðafræði í rekstri sínum.

Skoða verður hvernig aðferðafræðin hefur verið innleidd á hinum Norðurlöndunum og víðar s.s. í Bandaríkjunum, sett upp innleiðingaráætlun á Íslandi til 3ja ára, haldnir kynningarfundir, námskeið og ráðstefnru til að vinna aðferðafræðinni fylgi og unnið með stjórnvöldum við það að móta staðla, leiðbeiningar og handbækur um BIM.

Frá þessu er greint í frétt á vef Reykjanesbæjar


Ljósmyndir: Víkurfréttir

Bílakjarninn
Bílakjarninn