HSS
HSS

Fréttir

Vel heppnuð æfing á Vallarheiði
Fimmtudagur 25. október 2007 kl. 10:35

Vel heppnuð æfing á Vallarheiði

Slökkviðlið Brunavarna Suðurnesja stóð fyrir stóræfingu á Vallarheiði í gærkvöldi. Æfingin, sem bar yfirskriftina „Stórt útkall“ var sú fyrsta hjá BS eftir að þeir tóku við brunavarna-, slökkviliðs- og sjúkraflutningaþjónustu á svæðinu fyrir nokkrum mánuðum síðan.


Neyðarlínan tilkynnti um ímyndaðan eld í byggingu 632, sem var áður þvottahús og fatahreinsun Varnarlisðins og stendur til að rífa. Eldurinn var mikill og sjö manns voru fastir inni í byggingunni, þar af tvö börn.


Byggingin er nokkuð stór og víðfeðm með mörgum ranghölum og býður þess vegna upp á möguleika á erfiðri leit og langri reykköfun fyrir slökkviliðsmenn. Hefur hún enda verið mikið notuð af Brunamálaskólanum til æfinga í reykköfun fyrir atvinnuslökkviliðsmenn.

Húsið var reykfyllt þannig að reykkafarar þurftu að fylgja öllum grunnþáttum reykköfunar, svo vel mætti til takast. Margir reykkafarar voru samtímis inni í leit þannig að góð reykköfunarstjórnun, skráning og fjarskipti voru mikilvæg. Þá var áhersla lögð á að virkja alla útivinnulýsingu og rafbúnað liðsins.

Í pistli sínum á heimsíðu BS segir Sigmundur Eyþórsson, slökkviliðsstjóri, að æfingn hafi tekist vel enda hafi hún verið vel undirbúin.

www.bs.is

VF-myndir/Þorgils

Bílakjarninn
Bílakjarninn