Vel heppnaður „þjálfunardagur” hjá Brunavörnum Suðurnesja
Veðurguðirnir voru slökkviliðsmönnum svo sannarlega hliðhollir á laugardag, en 29 slökkviliðsmenn ásamt 4 „fórnarlömbum“ frá Björgunarsveitinni Suðurnes tóku þátt í æfingum sem BS stóð fyrir. Dagurinn var þétt skipaður, keyrðar voru verkstöðvar á fjórum stöðum þ.e. heit reykköfnunaræfing á Reynistað, köld reykköfunaræfing í húsnæði gömlu Steypustöðvarinnar, vatnsöflun við austurbakka Njarðvíkurbryggju og björgun fólks úr klesstum bifreiðum. Hver verkstöð var keyrð fjórum sinnum, samanlagt sextán 90 mínútna æfingar. Í upphafi dagsins var farið yfir skipulag dagsins sem síðan endaði með rýnifundi á slökkviliðsstöðinni seinni partinn.
Æfingarnar skiluðu miklum árangri og var tækifærið notað og húsið Reynistaður í Leiru látið brenna til grunna, en í kjölfar nýs „Gámahúsnæðis“ sem fyrirhugað var að staðsetja á svæði gömlu Sorpeyðingarstöðvarinnar við Hafnarveg, var ákveðið að fjarlægja húsnæðið í Leirunni.
Dagurinn endaði síðan að loknum frágangi á bílum og búnaði liðsins, um kl 18:00, þá fóru menn að undirbúa kvöldið, útskrift sjö „nýliða“ að loknu 80 kennslustunda fornámi. Fornámið er liður í því að nýliðar öðlast réttindi til að starfa í atvinnuslökkvilið. Slökkviliðsmönnum BS ásamt mökum var að því tilefni boðið í léttan kvöldverð í sal Matarlystar til að samgleðjast þessum áfanga og fagna nýjum liðstyrk „Slökkviliðsmanna“ í hóp BS.