Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Fréttir

Vel heppnað skólaþing um heimanám
Þriðjudagur 26. apríl 2016 kl. 11:24

Vel heppnað skólaþing um heimanám

Skólaþing um heimanám sem haldið var í Grunnskóla Grindavíkur þann 13. apríl sl. tókst sérlega vel. Þingið var haldið af stjórnendum skólans ásamt skólaráði og mun afrakstur af umræðum og þeirri vinnu er fram fór verða leiðarljós í stefnumótun heimanáms við skólann, segir í tilkynningu frá Grunnskóla Grindavíkur.

Halldóra K. Magnúsdóttir skólastjóri byrjaði þingið, bauð alla velkomna og kynnti til leiks stjórnanda þingsins, Önnu Kristínu Sigurðardóttur dósent við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Þinggestir voru á mjög breiðum aldri, samsettir af nemendum frá 2.-10. bekk, foreldrum og starfsfólki skólans.

Í heildina um 70-80 manns. Margar áhugaverðar tillögur komu fram jafnt frá yngri og eldri þátttakendum. Heimanám var rætt frá öllum hliðum, kostir þess og gallar ígrundaðir. Anna Kristín kallaði eftir skýrum tillögum þinggesta til að nýta í áframhaldandi vinnu, stýrði þinginu af kostgæfni, fór yfir allt það er rætt var í hópunum og gaf einnig kost á frekari spurningum og umræðum í lokin.

Á miðju þingi var tekið matarhlé þar sem borin var fram dýrindis súpa og brauð frá veitingastaðnum Hjá Höllu og mæltist einnig vel fyrir hjá ungu kynslóðinni að fá íspinna í eftirrétt!

Nemendur á öllum aldursstigum voru virkir og áhugasamir og skólanum til mikils sóma.







Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024