Vel gekk að rýma Bláa lónið
Bláa lónið í Svartsengi rýmdi í nótt öll sín athafnarsvæði vegna jarðskjálfta sem hafa mælst við Sundhnúksgígaröðina. Rýmingin gekk vel og eru gestir komnir eða á leið á önnur hótel og starfsmenn til síns heima.
Í fréttatilkynningu frá Bláa lóninu er gestum þakkað fyrir góðan skilning, starfsmönnum fagleg vinnubrögð og viðbragðsaðilum gott samstarf.
Allar starfsstöðvar Bláa lónsins í Svartsengi og í Grindavík verða lokaðar í dag, sunnudag. Frekari upplýsingar verða veittar eftir því sem líður á daginn.