Vel fylgst með umferðinni

Dagbók Lögreglunnar í Keflavík
Mánudagurinn 10. mars 2003
Þrír ökumenn voru kærðir fyrir of hraðan akstur. Einn var á 114 km hraða og annar á 110 km hraða þar sem hámarkshraði er 90 km. Sá þriðji var á 81 km hraða þar sem hámarkshraði er 50 km.
Þrír ökumenn voru kærðir fyrir að nota þokuljós þar sem aðstæður til notkunar á þokuljósum var ekki fyrir hendi.
Eigandi einnar bifreiðar var kærður fyrir að færa ekki bifreið sína til aðalskoðunar á tilsettum tíma.
Þriðjudagurinn 11. mars 2003
Einn ökumaður var kærður fyrir að nota þokuljós þar sem aðstæður til notkunar á þokuljósum var ekki fyrir hendi.
Eigandi einnar bifreiðar var kærður fyrir að færa ekki bifreið sína til aðalskoðunar á tilsettum tíma.
Miðvikudagurinn 12. mars 2003.
Kl. 15:09 var tilkynnt um innbrot í skemmtistað í Keflavík en myndvarpa hafði verið stolið þar.
Átta ökumenn voru kærðir fyrir hraðakstur á Reykjanesbraut. Sá sem hraðast fór var á 129km þar sem hámarkshraði er 90km.
Þrír ökumenn voru kærðir fyrir stöðvunarskyldubrot.
Tveir voru kærðir fyrir að tala í farsíma við akstur án þess að nota handfrjálsan búnað.
Eigendur tveggja bifreiða voru kærðir fyrir vanrækslu á endurskoðun bifreiða sinna.
Fimmtudagurinn 13. mars 2003.
Eigandi einnar bifreiðar var kærður fyrir að færa ekki bifreið sína til aðalskoðunar á tilsettum tíma.
Skráningarnúmer tekin af einni þar sem umráðamaður hennar hafði ekki sinnt boðun lögreglu um að færa hana til aðalskoðunar.
Tveir ökumenn voru kærðir fyrir of hraðan akstur og var annar þeirra á 132 km hraða þar sem hámarkshraði er 90 km.
Fimm ökumenn voru kærðir fyrir að nota ekki öryggisbelti við aksturinn.
Einn ökumaður var kærður fyrir að tala í farsíma við aksturinn.
Einn ökumaður var kærður fyrir réttindaleysi við akstur, það er að segja ökumaðurinn hafði ekki réttindi til að aka bifreiðinni þar sem hún var meira en 3.500 kg að leyfðri heildarþyngd.