Vel á þriðja hundrað þúsund í sekt
Allmargir hafa gerst brotlegir í umferðinni í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum á undanförnum dögum. Erlendur ferðamaður sem mældist aka á 138 km hraða á Reykjanesbraut reyndist einnig vera undir áhrifum áfengis að því er sýnatökur sýndu. Hann þurfti að greiða vel á þriðja hundrað þúsund fyrir brotin.
Annar ökumaður, einnig erlendur ferðamaður, mældist aka á 144 km hraða einnig á Reykjanesbraut þar sem hámarkshraði er 90 km.
Þá voru tveir ökumenn teknir úr umferð sem framvísuðu grunnfölsuðum ökuskírteinum.
Auk ofangreindra voru á annan tug ökumanna kærðir fyrir of hraðan akstur.