Vekja athygli á olíubirgðastöð
– og uppbyggingu öryggismiðstöðvar á Keflavíkurflugvelli
Atvinnu- og hafnaráð Reykjanesbæjar fagnar að bent sé á mikilvægi alþjóðaflugvallarins á Keflavíkurflugvelli í drögum að skýrslunni „Hagsmunir Íslands á norðurslóðum“ frá Ráðherranefnd um málefni norðurslóða 2015.
Atvinnu- og hafnaráði finnst að benda megi á möguleikana sem Helguvíkurhöfn hefur vegna olíubirgðastöðvar og með tenginguna við flugvöllinn. Einnig þarf að benda á möguleikana í áætlunum um uppbyggingu öryggismiðstöðvar á Keflavíkurflugvelli fyrir norðurskautsríkin, sem tengist Landhelgisgæslunni og flugumsjónarsvæðis Íslands.