Veitingastaður við Hafnargötu verði gistiheimili
JeES arkitektar ehf. hafa lagt fram fyrirspurn f.h. eigenda Hafnargötu 39 í Keflavík með ósk um að breyta veitingastað í gistiheimili.
Á jarðhæð Hafnargötu 39 er í dag leiguíbúð og veitingastaður en óskað er heimildar til að breyta veitingastað, þar sem nú er Thai Keflavík, í gistiheimili með fjórum herbergjum og forgarð að Hafnargötu.
Umhverfis- og skipulagsráð Reykjanesbæjar hefur frestað erindinu.