Fréttir

Veita heiðursviðurkenningar í tilefni af 50 ára kaupstaðarafmæli Grindavíkurbæjar
Miðvikudagur 20. mars 2024 kl. 12:50

Veita heiðursviðurkenningar í tilefni af 50 ára kaupstaðarafmæli Grindavíkurbæjar

Grindavíkurbær mun fagna 50 ára kaupstaðarafmæli sínu þann 10. apríl nk. Í tilefni af kaupstaðarafmælinu hyggst bæjarstjórn heiðra einstaklinga sem skilað hafa umfangsmiklu og mikilvægu framlagi til samfélagsins og verið öðrum til fyrirmyndar. Miðað skal við að framlag þeirra sé verulega umfram venjubundin störf sem tengst hafa atvinnu eða starfsævi viðkomandi.

Íbúum gefst kostur að senda inn tilnefningar til 27. mars nk. Tilgreina skal hvað það er sem sá eða sú sem tilnefnd eru hafi gert til þess að hljóta viðurkenninguna.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Tilnefningar skal senda á Eggert Sólberg Jónsson, sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs gegnum netfangið [email protected]