Bygg
Bygg

Fréttir

Veiðimaður og hrafn í átökum um gæsir
Hrafnar. Ljósmynd: Ellert Grétarsson
Þriðjudagur 29. september 2015 kl. 13:20

Veiðimaður og hrafn í átökum um gæsir

Mikill viðbúnaður var í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum um helgina þegar tilkynning barst um íbúa sem var að skjóta af haglabyssu fyrir utan hús sitt. Í ljós kom að allt var í stakasta lagi með byssumanninn og byssuleyfi hans. Raunin var sú að maðurinn, sem er margreyndur veiðimaður, var nýkominn úr gæsaveiðiferð og hafði aflað vel. Gæsirnar, auk stangveiðiafla, hafði hann hengt á staura við heimili sitt.

Bar þá að hrafn sem greinilega taldi réttmætt að hann fengi sinn skerf af aflanum, svo aðgangsharður var hann. Maðurinn tók til bragðs að skjóta upp í loftið til að hrekja varginn á brott.

En með þeirri varnaraðgerð gerðist hann brotlegur við vopnalög og var haglabyssa hans því haldlögð, auk þess sem lögregla gerði skýrslu um málið, sem bíður nú afgreiðslu.

Bílakjarninn
Bílakjarninn