Veglegir styrkir frá Kvenfélagi Keflavíkur á 80 ára afmælinu
Fimm félög eða aðilar fengu fjárstyrk frá Kvenfélagi Keflavíkur og voru styrkirnir afhentir á afmælishátíð félagsins nýlega.
Fjórir fengu styrki að upphæð 150 þúsund krónur hver en það voru Frú Ragnheiður, Geðræktarmiðstöðin Björgin, Gleymmér ey, Leikfélag Keflavíkur og þá fékk Velferðarsjóður Suðurnesja fékk 250 þúsund krónur.
Þá heiðraði félagið nokkrar konur fyrir óeigingjarnt starf.
Þær eru: Ásdís Þorsteinsdóttir, Fríða Bjarnadóttir, Guðrún Björnsdóttir, Helga Valdimarsdóttir, Hjálmey Einarsdóttir, Hjördís Traustadóttir, Kristín Guðnadóttir, Ólína Björnsdóttir, Rósa Jónsdóttir, Salóme Kristinsdóttir, Halla Gísladóttir, Birna Zophaníasdóttir og Margrét Vilmarsdóttir.