Vegfarendur höfðu áhyggjur af lágflugi yfir Grindavíkurvegi
Síðdegis í gær var tilkynnt um tvær litlar flugvélar sem flugu mjög lágt yfir Seltjörn og Grindavíkurveginn. Reyndust þetta vera fisvélar sem höfðu verið notaðar þarna við ljósmyndun en vélarnar ekki verið svo neðarlega að þær hafi snert vatnið, segir í bókun á vef lögreglunnar í Keflavík.
Atvikið vakti greinilega athygli vegfarenda í gær því a.m.k. tveir vegfarendur höfðu samband við Víkurfréttir og lýstu aðförum flugvélanna sem miklu háskaflugi. Ljósmyndari Víkurfrétta hafði þá einnig orðið vitni að lágfluginu en náði því miður ekki ljósmynd í návígi, en meðfylgjandi "mynd" náðist af rauðri flugvél sem flaug mjög lágt yfir hrauninu á svæði milli Seltjarnar og Háabjalla. Dökka rákin á myndinni er flugvélin og hefur sá hluti einnig verið stækkaður upp. Það skal viðurkennast hér að þessi mynd mun seint vinna til verðlauna...
Ljósmynd: Þorgils Jónsson