HSS
HSS

Fréttir

Vegagerðin ætlar að leggja Ósabotnaveg
Mánudagur 13. september 2004 kl. 17:18

Vegagerðin ætlar að leggja Ósabotnaveg

Vegagerðin ætlar að leggja níu kílómetra langan veg, svokallaðan Ósabotnaveg, milli Garðskagavegar og Hafnarvegar. Garðskagavegur endar nú við Stafnes um átta kílómetrum sunnan við Sandgerði. Alls þarf Vegagerðin ekki að leggja nema fimm komma fimm kílómetra vegaspotta því alls nýtast þrír komma átta kílómetrar af vegi Varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli sem liggur um svæðið. Kostnaður við verkið er níutíu milljónir en Skipulagsstofnun hefur kveðið á um að verkið þurfi ekki að sæta mati á umhverfisáhrifum. Tilgangur framkvæmdarinnar er einkum að skapa tengingu milli Sandgerðis og Hafna og stytta leiðir milli atvinnusvæða.

Ljósmynd: Oddgeir Karlsson

Bílakjarninn
Bílakjarninn