Fréttir

Vegaframkvæmdir á Garðskagavegi
Þriðjudagur 4. júlí 2017 kl. 11:01

Vegaframkvæmdir á Garðskagavegi

Í dag er stefnt að því að malbika báðar akreinar á Garðskagavegi, frá hringtorginu að Heiðarbergi. Veginum verður lokað á meðan, hjáleiðir settar upp og umferðarhraði lækkaður framhjá vinnusvæðinu. Búast má við lítilsháttar umferðartöfum. Lokanir og hjáleiðir verða merktar meðan á framkvæmd stendur.

Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir á milli kl. 8 og 17.

Optical Studio - 5. sept
Optical Studio - 5. sept

Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin sem eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.

Bílakjarninn
Bílakjarninn