Veftímarit VF: Fönix rís úr öskunni
- Verður Fischershús móttökuhús Reykjanesbæjar eða veitingahús?
Fischershús er svolítið eins og fuglinn Fönix. Þegar fuglinn fann að tími var komin á það að hann skyldi deyja þá flaug hann til Egyptalands, bjó þar til hreiður og lagði eld að því. Úr öskunni átti svo að rísa nýr Fönix. Fischershús dó fyrir mörgum árum eftir að fjaðrirnar höfðu verið reittar af því ein af annarri. Það var komið í öskuna. Undanfarin misseri hafa fjaðrirnar verið að vaxa að nýju. Fischershús hefur, eins og Fönix, risið úr öskunni. Með niðurrifi á því sem eftir var af rústum H/F Keflavíkur blasir glæsilegt en berskjaldað húsið nú við úr öllum áttum.