Veðurstofa spáir 10-16 stiga hita í dag
Veðurstofa Íslands spáir fremur hægri austlægri átt á Faxaflóa í dag. Skýjað verður með köflum og þurrt að mestu, en dálitlar skúrir síðdeigis. Þá er spáð hita á bilinu 10-16 stig með deginum. Í gær var veður með besta móti, óopinberir mælar voru að sýna hita allt frá 14-17 stiga og er greinilegt að sumarbylgjan er farin að láta sjá sig.