Veðurfar hamlar olíudælingu – skipið dæmt ónýtt

Verið er að undirbúa olíudælingu úr skipinu en veður hamlar því að hún geti hafist. Óvíst er hvenær af því getur orðið. Veðurspáin fyrir næstu nótt er slæm en svo er að heyra að áhyggjur manna séu aðeins minni eftir að skipið stóð af sér veðurofsann í gær en ölduhæðin út af Hvalsnesfjörum náði þá tæpum 13 metrum. Spáð er suðvestan 20-25 m/s í nótt.
Yfirheyrslur yfir skipsverjunum hafa staðið yfir hjá Rannsóknardeild lögreglunnar í Keflavík. Ekki hefur komið í ljós hvað olli því að sjálfstýring flutningaskipsins bilaði með svo örlagaríkum afleiðingum.
Sem fyrr segir er búið að dæma skipið ónýtt og er haft eftir Guðmundi Ásgeirssyni að farið verði í að fjarlægja flakið seinni part vetrar þegar skárra veðurfar og birta gerir verkið viðráðanlegra.
Mynd: Starfsmenn Olíudreifngar voru í morgun að meta aðstæður í Hvalsnesfjörum en þeir munu sjá um olíudælinguna þegar hún getur hafist. VF-mynd: elg