Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Veður: Skúrir eða slydduél
Fimmtudagur 3. maí 2007 kl. 01:15

Veður: Skúrir eða slydduél

Á miðnætti var vestlæg átt, víða 3-8 m/s. Dálítil rigning norðaustan- og austanlands, skúrir um landið vestanvert, en annars þurrt að kalla. Svalast var við frostmark, en hlýjast 10 stiga hiti á Kollaleiru.

Yfirlit
Yfir landinu er grunnt lægðardrag á hægri austurleið, en skammt A af Færeyjum er minnkandi 1023 mb hæð. Um 1000 km SV í hafi er 1027 mb hæð, sem þokast A.

Veðurhorfur á landinu
Veðurhorfur næsta sólarhringinn: Vestlæg átt, 3-8 m/s og dálítil rigning um landið austanvert, en annars skúrir. Vestan 5-13 með morgninum, hvassast við suðausturströndina. Skúrir eða slydduél, en bjart að mestu austanlands. Hiti 1 til 12 stig, hlýjast austantil, en svalast á Vestfjörðum.

Veðurhorfur við Faxaflóa næsta sólarhringinn
Suðvestan 5-10 m/s og skúrir eða slydduél. Hiti 3 til 7 stig.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024