Veður: Norðaustan 15-23 m/s og skýjað

Veðurhorfur á landinu næsta sólarhring:
Viðvörun: Búist er við stormi (meira en 20 m/s) víða um land.
Norðaustanátt, víða 18-23 m/s. Snjókoma eða él norðan- og austanlands, annars skýjað og úrkomulítið. Dregur úr vindi og éljum í kvöld og nótt, norðaustan 10-15 og dálítil él norðan- og austanlands á morgun, en annars léttskýjað. Kólnandi veður, frost 2 til 9 stig síðdegis á morgun.
Veðurhorfur við Faxaflóa næsta sólarhring: Norðaustan 15-23 m/s og skýjað. Norðaustan 13-18 í kvöld, en hægari í nótt. Kólnandi, frost 1 til 5 stig í kvöld.