Veður: Léttskýjað á morgun

Yfirlit: Yfir S-Noregi er 996 mb lægð, en 1025 mb hæð er yfir Grænlandi.
Veðurhorfur á landinu til kl. 18 á morgun: Hæg norðlæg eða breytileg átt og yfirleitt skýjað með köflum, en sumstaðar þoka við norðurströndina. Víða léttskýjað vestantil á morgun. Hiti 8 til 18 stig, hlýjast í uppsveitum suðvestanlands.
Veðurhorfur við Faxaflóa næsta sólarhring: Hæg norðlæg eða breytileg átt og skýjað með köflum. Norðaustan 5-10 m/s og víða léttskýjað á morgun. Hiti 10 til 18 stig.