Veður hægir fram til morguns
Klukkan 6 var suðaustlæg átt, víða 8-13 m/s og skúrir S- og V-lands, en hægari vindur og skýjað með köflum á N- og A-landi. Hiti var víða 5 til 9 stig, en svalast var eins stigs hiti á Litlu-Ávík.
Veðurhorfur við Faxaflóa næsta sólarhringinn:
Suðaustan 8-15 m/s og skúrir, en 5-10 síðdegis. Hægari á morgun og smáskúrir. Hiti 5 til 10 stig.
Yfirlit
450 km VSV af Reykjanesi er 972 mb lægð sem mjakast V og grynnist. Vaxandi 997 mb lægð er á N-Írlandi sem fer N. Yfirlit gert 25.04.2007 kl. 06:04
Veðurhorfur á landinu
Veðurhorfur til kl. 18 á morgun: SA 10-15 m/s SV-til, en hægari annars staðar. Lægir smám saman í dag. Fremur hæg S-læg átt á morgun. Skúrir eða rigning með köflum S- og V-lands, en úrkomulítið á morgun. Bajrt með köflum á Norður- og Austurlandi. Hiti 6 til 13 stig að deginum.
www.vedur.is