Veður: Bjartviðri í dag

Veðurhorfur á landinu næsta sólarhring:
Norðvestan og norðan 5-10 m/s og slydda eða snjókoma norðanlands, en annars heldur hægari norðlæg átt og víða léttskýjað eða skýjað með köflum. Dregur úr vindi og úrkomu norðantil síðdegis. Vaxandi austanátt og þykknar upp sunnanlands í nótt. Austan og norðaustan 5-15, hvassast vestantil. Slydda eða snjókoma sunnan- og vestanlands, en rigning við ströndina og dálítil él um norðan- og austanvert landið. Hiti kringum frostmark, en hiti 0 til 5 stig við suður- og vesturströndina.