Veðrið verður að lögreglumáli fari það ekki að lagast
Nokkuð hefur borið á því að fólk hefur verið að senda lögreglunni á Suðurnesjum fyrirspurnir á skilaboðum varðandi það hvort sumarið fari ekki að koma. Frá þessu er greint á fésbókarsíðu Lögreglustjórans á Suðurnesjum
„Eins og staðan er þá er þetta ekki enn orðið lögreglumál, en ef þetta lagast ekki um miðjan mánuðinn þá förum við í það að skoða málið,“ segir orðrétt á síðu lögreglunnar.
Eigið góða helgi gott fólk og farið varlega.