Veðrið um helgina
Veðurhorfur í dag
Norðaustan 8-13 m/s og sums staðar dálítil væta eftir hádegi. Hægari á morgun og þurrt. Hiti 12 til 20 stig.
Veðurhorfur á landinu næsta sólarhring
Norðaustan 8-13 m/s, en 10-15 með SA- og NV-ströndinni. Víða rigning eða súld, einkum SA-til. Norðaustan 5-10 og skýjað að mestu á morgun, en þurrt að kalla. Hiti yfirleitt 12 til 20 stig, hlýjast V-lands.
Sunnudag og mánudag
Norðan 8-10 m/s með A-ströndinni, en annars hægari norðlæg eða breytileg átt. Skýjað N- og A-lands og þokuloft úti við sjóinn, en annars víða léttskýjað. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast á SV-landi.