Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Veðrið að skella á - Útköll farin að berast
Sunnudagur 30. nóvember 2014 kl. 13:44

Veðrið að skella á - Útköll farin að berast

Núna kl. 13:00 var kominn 18 m/s vindur af suðaustri á Keflavíkurflugvelli og vindkviður að skella í 27 m/s.

Björgunarsveitin Suðurnes hafði fengið tvö útköll þegar Víkurfréttir tóku stöðuna á þeim bænum nú áðan. Annað var aðstoð við að fergja lausa muni og hitt var vegna lausrar klæðningar á gömlu sundhöllinni í Keflavík. Þá er einnig búið að kalla út björgunarsveitina Þorbjörn í Grindavík.

Fjölmennt lið björgunarfólks er í viðbragsstöðu á Suðurnesjum enda von á mjög slæmu veðri síðdegis og í kvöld.

Ábendingar frá veðurfræðingi
Hviður verða 35-45 m/s á utanverðu Kjalarnesi og Hafnarfjalli og eins varhugaverður vindur á Reykjanesbrautinni. Lægir heldur í skamma stund síðdegis áður en skellur á með SV-átt, fyrst á Suðurnesjum. Í kvöld og framan af nóttu verður sums staðar ofsaveður, meðalvindur allt að 25-30 m/s, sérstaklega um landið norðvestanvert og á annesjum norðanlands undir miðnætti.

Færð
Nú er hvasst á suðvesturhorni landsins og komið óveður á öllu Reykjanesi, Kjalarnesi, undir Akrafjalli og Hafnarfjalli. Einnig er óveður undir Eyjafjöllum og við Markarfljót.

Það eru hálkublettir á Hellisheiði, Mosfelllsheiði og Lyngdalsheiði en annars eru flestir vegir greiðfærir á Suðurlandi.  Á Vesturlandi er hálka eða hálkublettir á flestum fjallvegum en að mestu greiðfært á láglendi.

Hálka eða snjóþekja er víða á vegum á Vestfjörðum en ófært á Hrafnseyrarheiði.  

Á Norðurlandi vestra er að mestu greiðfært en hálka eða hálkublettir nokkuð víða á Norðausturlandi. Greiðfært er á láglendi á Austfjörðum en hálkublettir á flestum fjallvegum. Suðausturströndin er greiðfær.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024