Vaxandi suðaustanátt og rigning í kvöld
Klukkan 6 var suðvestlæg eða breytileg átt, víða 3-8 m/s. Bjartviðri á Norðausturlandi, annars skýjað og rigning eða súld suðaustantil. Hiti yfirleitt 0 til 6 stig.
Veðurhorfur við Faxaflóa næsta sólarhringinn:
Suðvestlæg átt, 3-8 m/s, skýjað og sums staðar lítilsháttar væta. Vaxandi suðaustanátt í kvöld, víða 10-15 í nótt og rigning. Hiti 1 til 7 stig.
Kortið er tekið af vef Veðurstofunnar