Vaxandi suðaustanátt á morgun, 13-20 síðdegis og rigning
Hæg breytileg átt og þurrt við Faxaflóa. Suðaustan 5-10 m/s undir kvöld og lítilsháttar slydda eða rigning. Vaxandi suðaustanátt á morgun, 13-20 síðdegis og rigning. Hiti um eða rétt yfir frostmarki en 2 til 6 stig síðdegis á morgun.
Veðurhorfur á höfuðborgarsvæðinu
Hæg suðlæg átt og þurrt. Suðauastan 5-10 m/s undir kvöld og lítilsháttar slydda eða rigning en vaxandi vindur á morgun, 13-18 síðdegis og rigning. Hiti um eða rétt yfir frostmarki en hlýnar á morgun.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á þriðjudag:
Suðvestan 10-18 m/s og éljagangur, en dregur úr vindi þegar líður á daginn. Bjartviðri á NA- og A-landi. Frost 0 til 5 stig síðdegis. Hvessir syðst seint um kvöldið og bætir í úrkomu.
Á miðvikudag:
Norðlæg átt, hvöss A-lands, en vestan hvassviðri S-lands. Snjókoma með köflum í flestum landshlutum. Frost 0 til 6 stig.
Á fimmtudag:
Ákveðin norðan- og norðvestanátt og snjókoma N-til á landinu, en bjart að mestu syðra. Áfram kalt í veðri.
Á föstudag:
Norðlæg og síðar breytileg átt. Dálítil él á N-verðu landinu fram eftir degi, annars úrkomulaust. Hiti breytist lítið.
Á laugardag:
Útlit fyrir sunnan- og suðaustanátt með úrkomu og hita kringum frostmark.