Bygg
Bygg

Fréttir

Vatnslögn sprakk með miklu flóði
Fimmtudagur 19. ágúst 2004 kl. 17:25

Vatnslögn sprakk með miklu flóði

Vatnslögn í Hrannargötu í Keflavík sprakk um miðjan dag með miklu vatnsflóði. Skyndilega fór vatn að flæða upp úr götunni á mótum Hrannargötu og Víkurvegar. Vatn kom upp um öll samskeyti á malbikinu og á nokkrum mínútum var orðið mikið vatnsflóð sem náði niður á Keflavíkurhöfn og steyptist þar fram af bryggjunni.

Starfsmenn vatnsveitunnar voru fljótir á staðinn og skrúfuðu fyrir rennsli í götunni. Ástæður þess að lögnin fór í sundur er ekki ljós. Getgátur voru uppi á staðnum um að mikil umferð svokallaðra búkolla um svæðið hafi veikt lögnina. Þá var vatnslögn á Vatnsnesvegi einnig lokuð vegna framkvæmda í Hafnargötu og hugsanlegt að breytingar hafi orðið á þrýstingi vegna þess.

Íbúi við Vatnsnesveg var í sambandi við blaðið nú síðdegis og sagði mikinn óþvetta hafa verið í vatninu. Lengi hafi runnið litað vatn úr krananum hjá honum og hugsanlegt að lögn að salerni hafi stíflast af óhreinindum eftir að vatni var hleypt á aftur.

Myndirnar af vatnsflóðinu tók Hilmar Bragi Bárðarson.

Bílakjarninn
Bílakjarninn