Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Fréttir

Vatnsból á Grindavíkurvegi í hættu
Föstudagur 23. mars 2018 kl. 15:52

Vatnsból á Grindavíkurvegi í hættu

Heilbrigðisnefnd Suðurnesja lýsir yfir áhyggjum af þeirri hættu sem vatnsbólum Suðurnesjamanna í Lágum stafar af bílaumferð á Grindavíkurvegi. Þetta kemur fram í fundargerð bæjarráðs Garðs þann 22. mars. Heilbrigðisnefnd Suðurnesja sendi bréf til bæjarráðs Garðs og í því kemur m.a. fram að ef grunnvatn mengast t.d. vegna olíuleka af völdum bílslyss, eru yfirgnæfandi líkur á að vatnsbólin spillist innan fárra vikna. Skorar nefndin á sveitarfélög á Suðurnesjum og hlutaðeigandi veitufyrirtæki að hefja nú þegar undirbúning að flutningi vatnsbólanna á öruggari stað.

Bæjarráð Garðs þakkar Heilbrigðisnefnd Suðurnesja fyrir að vekja athygli á þessu mikilvæga máli og hvetur jafnframt til þess að rannsóknum og vinnu við að opna ný vatnsból verði hraðað, en málið hefur m.a. verið í vinnslu hjá Svæðisskipulagsnefnd Suðurnesja og viðkomandi veitufyrirtæki. Bæjarráð leggur áherslu á hve mikilvægt hagsmunamál er um að ræða fyrir öll Suðurnes, íbúa og atvinnustarfsemi.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024