Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Vatn komið á Njarðvíkuræðina
Föstudagur 9. febrúar 2024 kl. 18:20

Vatn komið á Njarðvíkuræðina

Aðgerðir dagsins við að tengja Njarðvíkuræðina, heitavatnslögnina frá Svartsengi til Reykjanesbæjar, tókust vel og nú streyma um 70 l/s í gegnum hana áleiðis í heitavatnstanka HS Orku á Fitjum. Enn sem komið er verður ekki séð að lekar séu á lögninni undir hrauninu. Þrýstingur verður aukinn hægt og rólega fram eftir kvöldi í samvinnu við HS Veitur þar til fullum afköstum verður náð.

Suðuvinnu lauk um þrjúleytið í dag og þá var strax hafist handa við að dæla rólega inn á lögnina til að sjá hvað hún þyldi. Óttast var að skemmdir hefðu orðið á þeim hluta hennar sem fór undir hraun auk þess sem hitabreytingar við inndælingu gátu valdið því að lögnin skryppi saman og tog kæmi á hana. Það gerðist ekki. Á þeim hluta lagnarinnar sem búið var að sanda og fergja eru vísbendingar um að hitastigið sé ekki mjög hátt miðað við aðstæður en lögnin var á tveggja metra dýpi áður en hraunið rann.

Ekki er sjálfgefið að aðgerð af þessum toga, við jafn krefjandi aðstæður og raun ber vitni, gangi áfallalaust fyrir sig. Það var þó reyndin í dag og ber að þakka það öruggum og vönduðum vinnubrögðum starfsmanna HS Orku og verktakanna HD tæknilausna og stálsmiðjunnar Framtaks og Ellert Skúlason, segir í tilkynningu frá HS Orku.

HS Veitur birtu þetta rétt í þessu:
Þegar búið er að gera við lögnina við Svartsengi mun heitt vatn byrja að berast í heitavatnstankana að Fitjum. Þaðan verður svo hleypt rólega inn á dreifikerfið inn á ákveðin svæði í einu. Er það gert til að vernda dreifikerfið, minnka líkur á lekum, loft tæma lagnirnar og byggja upp þrýsting á kerfinu.

Gott er að íbúar hafi hitastilla lágt stillta og hækki ekki hitann fyrr en ofnar eða gólfhitakerfi byrja að hitna, og hækki síðan hitastilla í rólegheitunum í nokkrum þrepum.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024