Varnarmálin: Trúðu Bandaríkjamenn á sigur stjórnarandstöðunnar?
Björn Bjarnason dómsmálaráðherra varpar fram þeirri spurningu í Morgunblaðinu í morgun, hvort það hafi átt þátt í ákvörðun Bandaríkjamanna að kalla flugsveit varnarliðsins í Keflavík heim, að þeir hafi talið að úrslit alþingiskosninganna í vor yrðu önnur en raun varð á. Spyr hann einnig hvort viðræður hafi átt sér stað milli fulltrúa bandaríska sendiráðsins í Reykjavík og stjórnarandstöðuflokkanna. Orðrétt segir ráðherrann í Morgunblaðsgreininni: "Hafi Bandaríkjastjórn tilkynnt rétt fyrir alþingiskosningar, að fáeinum vikum eftir kosningarnar yrði gjörbreyting á fyrirkomulagi varna landsins og tvíhliða varnarsamningi þjóðanna, er það til marks um litla pólitíska dómgreind.
Töldu Bandaríkjamenn, að úrslit kosninganna yrðu önnur en varð? Ræddu fulltrúar bandarískra sendiráðsins við talsmenn stjórnandstöðunnar fyrir kosningar um þetta mál?"
Vísir.is greinir frá.
Töldu Bandaríkjamenn, að úrslit kosninganna yrðu önnur en varð? Ræddu fulltrúar bandarískra sendiráðsins við talsmenn stjórnandstöðunnar fyrir kosningar um þetta mál?"
Vísir.is greinir frá.