HSS
HSS

Fréttir

Varnarmál: Framkvæmdastjóri NATO beðinn um aðstoð
Föstudagur 25. júlí 2003 kl. 18:56

Varnarmál: Framkvæmdastjóri NATO beðinn um aðstoð

Íslendingar hyggjast reyna að fá framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins til að fá Bandaríkjastjórn ofan af áformum sínum eða að knýja fram frestun á brotthvarfi flugvéla og fækkun í varnarliðinu. Robertson lávarður, framkvæmdastjóri NATO, kemur hingað til lands á mánudag og mun eiga fund með utanríkisráðherra og forsætisráðherra. Ríkisútvarpið greindi frá þessu nú áðan.Robertson er væntanlegur hingað til lands eftir helgi og fundar með Halldóri Ásgrímssyni og Davíð Oddssyni í ráðherrabústaðnum á Þingvöllum á mánudagsmorgun þar sem staðan í varnarmálunum verður rædd. Haft er eftir ónefndum embættismanni Atlantshafsbandalagsins að Robertson verði að forðast að taka afstöðu í því sem bandalagið telji mál tveggja ríkja, Bandaríkjanna og Íslands. Embættismaðurinn sem ekki vill láta nafns síns getið, segir einnig að erfitt sé að færa rök fyrir því að árásarþoturnar á Keflavíkurflugvelli séu nauðsyn.
 
Fréttastofa Reuters hefur eftir Birni Bjarnasyni dóms- og kirkjumálaráðherra í dag að Bandaríkjamenn virðist hafa áttað sig á því að ekki sé aðeins um innanhúsmál í bandaríska varnarmálaráðuneytinu að ræða heldur pólitískt mál um samskipti Íslands og Bandaríkjanna. Um samtal sem Davíð Oddson átti við Condolezzu Rice þjóðaröryggisráðgjafa Bush Bandaríkjaforseta í vikunni segist Björn merkja að hún geri sér grein fyrir að þjóðaröryggi Íslands sé í húfi.
 
Björn segir íslensk stjórnvöld trúa því að Robertson geti skýrt fyrir Bandaríkjastjórn hvaða augum hérlend stjórnvöld líti málið. Robertson lávarður hefur þegar fengið því framgengt við stjórn Bush að brotthvarfi flugvélanna var frestað fyrir kosningarnar í maí. Robertson heldur héðan til Bandaríkjanna til viðræðna við þarlenda ráðamenn.

Ríkisútvarpið greinir frá.
Bílakjarninn
Bílakjarninn