HSS
HSS

Fréttir

Sunnudagur 8. júní 2003 kl. 23:47

Varnarmál: Ekkert rætt um flugherinn

Bandaríkjamenn óskuðu eftir því fyrir um einu og hálfu ári að bandaríska flugsveitin á Keflavíkurflugvelli færi tímabundið af landi brott og sinnti verkefnum annars staðar. Ekkert varð úr því vegna þess að íslensk stjórnvöld höfnuð eindregið beiði Bandaríkjamanna.Í bréfi Bush Bandaríkjaforseta til forsætisráðherra er ekki rætt um brotthvarf flughersins héðan heldur aðeins að leitað verði nýrra leiða til að tryggja varnir landsins.
 
Fljótlega eftir hryðjuverkin í Bandaríkjunum 11. september 2001 var þeirri ósk komið á framfæri til Íslenskra stjórnvalda að það væri vilji stjórnvalda í Washington að orrustuflugsveitin færi héðan til að sinna brýnni verkefnum t.d að sinna lofvörnum yfir bandarískum borgum. Íslensk stjórnvöld voru alfarið á móti þessu þó að um tímabundin verkefni væri að ræða og höfnuðu beiðni Bandaríkjamanna.
 
Í bréfinu frá Bush Bandaríkjaforseta til Davíðs Oddssonar forsætisráðherra er ekki minnst á það að flugherinn fari héðan. Bréfið er í vinsamlegum tón. Meginefni þess er það sem þegar hefur komið fram; að leitað verði nýrra leiða til að tryggja varnir landsins og að þær breytingar verði í samræmi við hagsmuni beggja landanna. Þá er kafli í bréfinu þar sem íslenskum stjórnvöldum er þakkaður stuðningur þeirra við stríðið í Írak.
 
Hins vegar hefur stefna Bandaríkjanna legið lengi fyrir hvaða varðar Varnarliðið. Þeir vilja draga úr viðbúnaði hér og það hafa íslensk stjórnvöld lengi vitað. Viðmælendur Fréttastofu gagnrýna viðbrögð stjórnvalda nú sem virðast vera óviðbúin þeim tíðindum að flugherinn hverfi héðan og segja að svo virðist sem þau hafi verið í hálfgerðri afneitun.
 
Heimildir fréttastofu herma að fundurinn í ráðherrabústaðnum á fimmtudag, þar sem Elizabeth Jones, aðstoðarráðherra í bandaríska utanríkisráðuneytinu, afhenti forsætisráðherra bréfið frá Bush, hafi verið snubbóttur. Til marks um það er tímalengd fundarins sem stóð aðeins í hálfa klukkustund.
 
Eftir að forsætis- og utanríkisráðherra fengu bréfið í hendur hafi þeir gefið til kynna að þeir vildu ekki ræða mikið við Jones aðstoðarráðherra. Hins vegar kom fram þar að Bandaríkjamenn vilja að flugherinn fari héðan og að ákvörðun um það liggi fyrir eftir einn til tvo mánuði.
 
Ekki er hins vegar ljóst hvort krafa sé um að hann fari strax í sumarlok en íslensk stjórnvöld gera sér að minnsta kosti vonir um að einhver aðdragandi verði að því. Það mun væntanlega koma fram í svarbréfinu sem forsætisráðherra sendir Bush Bandaríkjaforseta í næstu viku.

Ríkisútvarpið greinir frá.
Bílakjarninn
Bílakjarninn