Bygg
Bygg

Fréttir

Mánudagur 27. október 2003 kl. 13:33

Varnarliðið vill ekki ræða uppsagnir

Flotastöð Varnarliðsins er að endurskoða áætlanir sína vegna lægri fjárveitinga til reksturs sveitarinnar, en þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Varnarliðinu. Friðþór Eydal upplýsingafulltrúi Varnarliðsins vildi ekki tjá sig í samtali við Víkurfréttir um að 90 manns verði sagt upp störfum hjá Varnarliðinu um mánaðarmótin. Víkurfréttum hefur borist eftirfarandi yfirlýsing frá Varnarliðinu vegna málsins:

„Eins og áður hefur komið fram hefur Flotastöð varnarliðsins, sem er um tveir þriðju hlutar varnarliðsins og annast alla þjónustustarfsemi á varnarsvæðinu, hefur fengið bráðabirgðafjárveitingu sem er nokkru lægri en fjárveiting fyrra árs. Flotastöðin er að endurskoða áætlanir sínar í samræmi við áætlaðar breytingar. Varnarliðið telur óviðeigandi að ræða um einstök atriði að svo komnu máli.“ 
Bílakjarninn
Bílakjarninn