Bygg
Bygg

Fréttir

Varnarliðið stærsti greiðandi opinberra gjalda á Suðurnesjum
Mánudagur 31. október 2005 kl. 12:06

Varnarliðið stærsti greiðandi opinberra gjalda á Suðurnesjum

Af tuttugu stærstu lögaðilum sem greiða opinber gjöld í umdæmi skattstjórans á Reykjanesi samkvæmt álagningarskrá fyrir lögaðila eru sjö þeirra af Suðurnesjum.
Lyfjafyrirtækið Actavis Group hf. greiðir hæstu gjöldin. Fyrsti „Suðurnesjagreiðandinn“ er Varnarliðið en það er fimmti stærsti greiðandinn í umdæminu.

Alls eru 6243 lögaðilar á álagningarskrá. Á félög og aðra lögaðila nemur álagningin alls 9.671.609.939 krónum og hefur hækkað um 27,85% milli ára. Mest hefur tekjuskattur hækkað milli ára eða um 71,43%. Listinn yfir þá lögaðila á Suðurnesjum, sem greiða yfir 75 milljónir króna, er eftirfarandi. Fyrir framan nöfn lögaðilanna eru númer yfir þau sæti sem þau skipa á lista skattstjórans:

5. Varnarliðið, fjármáladeild kr. 208.709.909 Keflavíkurflugvelli
7. Þorbjörn Fiskanes hf. kr. 170.352.021 Hafnargötu 12, Grindavík
8. Íslenskir aðalverktakar hf. kr. 163.889.187 Keflavíkurflugvelli
10. Alcan á Íslandi hf. kr. 143.730.899 Straumsvík
12. Reykjanesbær kr. 116.935.115 Tjarnargötu 12, Reykjanesbæ
14. Nesfiskur ehf. kr. 101.375.933 Gerðavegi 32, Garði
15. Flugstöð Leifs Eiríkssonar kr. 98.127.955 Keflavíkurflugvelli
Bílakjarninn
Bílakjarninn