Varnarliðið skuldar íslenskum fyrirtækjum

Herinn átti í miklum viðskiptum við fjölmörg fyrirtæki í landinu en nú hefur komið í ljós að hann hefur skilið eftir sig ógreidda reikninga. Þannig hafa starfsmenn nokkurra fyrirtækja haft samband við fréttastofu Stöðvar 2 og kvartað undan því að hafa ekki fengið vörur sínar greiddar. Upphæðirnar sem um ræðir eru allt frá nokkur hundruðum þúsunda upp í tæpa milljón. Kvartað er yfir því að litla aðstoð sé að fá frá sendiráði Bandaríkjanna í Reykjavík.
Fréttastofa Stöðvar 2 fékk þau svör frá Sally Hodgson á upplýsingaskrifstofu sendiráðsins í dag, að þar ynni starfsmaður sem hefði það verkefni að sjá til þess að reikningar væru greiddir. Reikningarnir væru sendir áfram til höfustöðva flotans í Napolí á Ítalíu eða herstöðvar flughersins í Lakenheath í Bretlandi til staðfestingar og eftir staðfestingu væru þeir greiddir. Hogson segir að ef fyrirtæki eigi enn eftir að fá greitt fyrir vörur sínar, sé sendiráðið reiðubúið að kanna mál þeirra.