Varnarliðið og Gæzlan æfa utan við Keflavík
Björgunarsveit Varnarliðsins og Landhelgisgæzlan hafa verið við æfingar á ytri höfninni í Keflavík í allan morgun. Þyrla gæzlunnar, TF-LÍF hefur verið á flugi yfir varðskipinu TÝR og menn hífðir upp og niður.Eftir hádegið verður síðan ráðstefna á Keflavíkurflugvelli þar sem farið verður yfir æfinguna.Meðfylgjandi myndir tók Hilmar Bragi af Keflavíkurhöfn.






