Bygg
Bygg

Fréttir

Varðskipið Þór til Grindavíkur
Þór við bryggju í Grindavík síðasta vetur. VF-mynd: Hilmar Bragi
Föstudagur 5. mars 2021 kl. 20:24

Varðskipið Þór til Grindavíkur

Varðskipið Þór er á leið til Grindavíkur og verður þar til taks ef áframhaldandi vandamál koma upp með raforku í bænum. Þetta kom fram í fréttum RÚV í kvöld.

Þór kom til Grindavíkur síðasta vetur og sett var upp tenging þannig að ljósavélar skipsins geti framleitt rafmagn inn á dreifikerfi Grindavíkur komi til hamfara eða langvarandi rafmagnsleysis.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Grindavík fær í dag raforku frá orkuverinu í Svartsengi en bæjaryfirvöld í Grindavík vilja koma á öruggari tengingum til bæjarins og það var m.a. rætt við forsætisráðherra í rafmagnsleysinu í Grindavík síðdegis.

Hér að neðan er sjónvarpsviðtal Víkurfrétta við Fannar Jónasson bæjarstjóra í Grindavík um rafmagnsleysið í dag.