Varðskip við Voga
Varðskipið Þór er nú statt skammt undan landi við Voga á Vatnsleysuströnd. Þar uppaf ströndinni er vettvangur jarðskjálfta sem hafa látið finna rækilega fyrir sér síðustu vikuna.
Ekki hafa fengist upplýsingar um það hvort vera varðskipsins á þessum stað tengist skjálftavirkninni eða hvort hún sé tilfallandi en varðskip Landhelgisgæslunnar liggja oft skammt undan landi á Vatnsleysuströnd.
Að neðan má sjá beint streymi úr myndavél Víkurfrétta sem vanalega er beint að svæðinu við Keili en sýnir varðskipið þessa stundina.