Varðskip með Sólborgu í togi
Varðskip Landhelgisgæslunnar nú á leið til Reykjavíkur með Sólborgu RE-270, 115 tonna dragnótarbát, í togi. Báturinn varð vélarvana á Sandvík við Reykjanes um tvöleytið í dag. Ekki er búist við að komið verði til Reykjavíkur fyrr en seint í kvöld.
Ljósmynd: Varðskipið kemur að Sólborgu RE undir Hafnabergi nú síðdegis.
VF-mynd: Hilmar Bragi Bárðarson
.